Activities within the week
Mosfellsbær organises activities during EUROPEANMOBILITYWEEK 2023, taking into account the annual theme.
19 September
BMX-hátíð á Miðbæjartorginu
BMX BRÓS verða með orkumikla sýningu og í kjölfarið bjóða þeir upp á skemmtilegt hjólanámskeið þar sem þátttakendur leysa krefjandi hjólaþrautir, fá kennslu í grundvallaratriðum og enda svo á tímatöku. Muna að taka hjól og hjálm með.
20 September
Dr. Bæk á Miðbæjartorgi
Allir hjólaeigendur hvattir til að koma með hjólhesta sína í fría ástandsskoðun hjá Dr. Bæk. Doktorinn kemur með farandskoðunarstöðina sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla. Hann skoðar hjólin og vottar heilsu þeirra.
22 September
Bíllausi dagurinn. Strætó bs. og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða frítt í strætó þennan dag. Mosfellingar hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér vistvæna samgöngumáta.